Tilvísanir enn nauðsynlegar fyrir börn – þrátt fyrir nýja reglugerð 1. júlí 2025

Komið hefur fram í fjölmiðlum að ekki þurfi lengur tilvísun fyrir börn til að komast að hjá sérfræðilæknum. Þetta hefur valdið misskilningi.

Rétt er að frá og með 1. júlí 2025 verður læknisþjónusta gjaldfrjáls fyrir öll börn undir 18 ára aldri – bæði hjá heilsugæslu og sérfræðilæknum. Þetta þýðir eingöngu að þjónustan er gjaldfrjáls, ekki að tilvísanakerfinu hafi verið breytt.

Hjá Læknastöðinni í Orkuhúsinu þurfum við áfram tilvísanir frá heimilislækni eða heilsugæslu til að hægt sé að:

  • Greina og forvinna erindi barnsins
  • Meta þörfina fyrir viðtals- og rannsóknartíma
  • Forgangsraða biðlistum út frá klínískum þörfum.

Þetta á við um bæklunarlækna og aðra sérfræðinga hjá okkur

Við biðlum því til foreldra og forráðamanna að leita fyrst til heilsugæslu eða heimilislæknis – eins og áður – sem metur þörf fyrir tilvísun í hverju tilviki.