Hjá Stoðkerfi ehf skal unnið markvisst að því:
Vöruinnkaup
Við vöruinnkaup skal velja vörur með viðurkenndum umhverfismerkjum þar sem kostur er og taka tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða. Ef þjónusta eða vörur eru sambærilegar ber að velja þann kost sem telst minnst skaðlegur umhverfinu. Dæmi:
Lágmarka skal sóun, flokka endurvinnanlegan úrgang og skila til endurvinnslu í samræmi við settar reglur og aðrar leiðbeiningar. Öllum spilliefnum, svo sem rafhlöðum, prenthylkjum og ljósaperum, skal fargað á viðeigandi hátt.
Starfsfólk er hvatt til að prenta hvorki né ljósrita að óþörfu. Leitast skal við að endurnýta pappír og geyma skjöl frekar á rafrænu formi en pappír þegar það er hægt. Jafnframt skal draga úr notkun einnota aðfanga, svo sem borðbúnaðar.
Læknar nýti sér saumaefni sem eyðist sjálfkrafa þegar hægt er, bæði til að spara ferðir til okkar sem og efnispillingu.
Sorpflokkun
Sorpflokkun fer fram á eftirfarandi hátt:
Allar plastumbúðir annar plastúrgangur er flokkaður sérstaklega í viðeigandi ílát. Aðstaða til flokkunar er á öllum starfstöðvum og á kaffistofu. Tæmt daglega í endurvinnslugám.
Reynt er að lágmarka notkun pappírs en á þeim stöðum sem unnið er með pappír, svo sem skrifstofurýmum, eru ílát til flokkunar. Aðstaða til flokkunar pappírsumbúða á kaffistofu. Tæmt daglega í endurvinnslugám.
Þegar Embætti landlæknis innleiðir að fullu nýja tilvísunargátt mun pappírsnotkun Stoðkerfis minnka um 80-90%
Spilliefni, svo sem rafhlöður og prenthylki, er safnað og skilað á viðeigandi móttökustað.
Sóttmengaður úrgangur sem fellur til við starfsemina, svo sem nálar og æðaleggir, er safnað í þar til gerða poka og fargað hjá þriðja aðila.
Ónýtum raftækjum er safnað í viðeigandi spilliefnatunnu og skilað á móttökustað til endurvinnslu.
Áldósum og plast-/glerflöskum er safnað og farið með í endurvinnslu.
Reynt er að halda óendurvinnanlegum úrgangi í lágmarki.
Sóun
Fara skal sparlega með vatn og orkuauðlindir, t.d. skal ekki láta vatn renna að óþörfu og slökkva á rafmagnstækjum og ljósum í lok vinnudags. Ennfremur skal fara sparlega með ræstiefni við uppþvott og ræstingar.
Samgöngur
Leitast er við að velja umhverfisvænar leiðir þegar ferðast er á vegum fyrirtækisins og samnýta ferðir þegar hægt er.
Starfsfólk skal hvatt til að velja helst vistvæna ferðamáta til og frá vinnu.
Leitast er við að halda fjarfundi og sækja námskeið á netinu eftir því sem kostur er
Sótt námskeið á netinu er talið spara um 1,2 tonn CO₂-ígildi á ári samkvæmt útreikningum Avia (stafrænu kerfi Akademias námskeiða).
Læknar skulu einnig fylgja sjúklingum eftir með símtali þegar hægt er til að spara ferðir til okkar. Sjúklingar sem eru utan að landi skal vera vísað til næstu heilsugæslu í endurkomu til að spara ferðir.
Heildarmarkmið
Magn CO₂-ígildi sem sparað var á árinu vegna inngrips fyrirtækisins árið 2024 var 1,2 tonn (fyrir þau gildi sem mæld voru). Markmiðið er að vinna að nákvæmari mælingum á komandi árum og hækka þessa tölu ásamt því að skera niður kolefnisspor fyrirtækisins. Aðgerðir til að ná þessu markmiði fela í sér bættar samgöngulausnir, skilvirkari úrgangsstjórnun og aukna notkun rafrænna lausna.
Áætlanir og aðgerðir