Læknastöðin Orkuhúsinu, sem er sjálfstætt starfandi heilbrigðisfyrirtæki, tekur þátt í úttekt á stafrænum sjúkraskrárkerfum og notkun þeirra, ásamt þremur ríkisstofnunum. Við teljum mikilvægt að taka þátt í öllum verkefnum með ríkinu sem geta stuðlað að bættri heilbrigðisþjónustu og bættri reynslu sjúklinga.
Markmið þessarar úttektar er að niðurstaðan veiti góða mynd af því hvar við stöndum í stafrænni umbreytingu og hvað þarf að gera til að bæta notkun og samvirkni kerfanna þvert á þjónustuveitendur. Þetta á að stuðla að betri upplifun sjúklinga og tryggja að þeir fái heildstæðari yfirsýn yfir sína heilbrigðisþjónustu.
Frétt heilbrigðisráðuneytisins til frekari upplýsinga:
Stjórnarráðið | Mikilvægt skref í stafrænni þróun á landsvísu