Blog

23. september 2025
Læknastöðin Orkuhúsinu, sem er sjálfstætt starfandi heilbrigðisfyrirtæki, tekur þátt í úttekt á stafrænum sjúkraskrárkerfum og notkun þeirra, ásamt þremur ríkisstofnunum. Við teljum mikilvægt að taka þátt í öllum verkefnum með ríkinu sem geta stuðlað að bættri heilbrigðisþjónustu og bættri reynslu sjúklinga. Markmið þessarar úttektar er að niðurstaðan veiti góða mynd af því hvar við stöndum í stafrænni umbreytingu og hvað þarf að gera til að bæta notkun og samvirkni kerfanna þvert á þjónustuveitendur. Þetta á að stuðla að betri upplifun sjúklinga og tryggja að þeir fái heildstæðari yfirsýn yfir sína heilbrigðisþjónustu. Frétt heilbrigðisráðuneytisins til frekari upplýsinga: Stjórnarráðið | Mikilvægt skref í stafrænni þróun á landsvísu.
Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klínikunnar, Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúlkratr
23. september 2025
Í dag var formlega undirritaður samningur milli Sjúkratrygginga Íslands annars vegar og Læknastöðvarinnar Orkuhúsinu og Læknahússins Dea Medica hins vegar.
22. september 2025
Læknastöðin Orkuhúsinu verður með lokanir vegna sumarleyfa. Skurðstofan lokar frá og með 8. júlí og opnar eftir verslunarmannahelgi 5. ágúst.  Móttakan lokar aðeins síðar, eða 10. júlí og opnar á sama tíma eftir verslunarmannahelgi. Við vonum að allir hafi það gott í sumar!