Sigurveig Pétursdóttir bæklunarskurðlæknir kemur til starfa á Læknastöðinni
Sigurveig Pétursdóttir, sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum með sérhæfingu í bæklunarlækningum barna, kemur til starfa á Læknastöðinni í október.
Sigurveig hefur áratuga reynslu af bæklunarskurðlækningum og hefur starfað sem sérfræðingur á bæklunarskurðdeild Landspítala frá árinu 2002. Áður starfaði hún á bæklunarskurðdeild Akademiska sjukhuset í Uppsölum í Svíþjóð, meðal annars á barnabæklunardeild sjúkrahússins.
Sigurveig lauk sérfræðinámi í bæklunarskurðlækningum í Svíþjóð og fékk sænskt sérfræðileyfi árið 1991 og íslenskt sérfræðileyfi árið 1992.
Koma Sigurveigar er mikilvæg viðbót við starfsemi Læknastöðvarinnar og styrkir sérstaklega þjónustu við börn og ungmenni sem þurfa á mati og meðferð vegna bæklunarvandamála að halda.
Nú þegar er hægt að senda tilvísanir til Sigurveigar á Læknastöðina.









