Verðskrá



Greiðslur fyrir þjónustu skv. reglugerð um greiðsluþátttöku í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu fyrir sjúkratryggða er sem hér segir. Núverandi reglugerð er nr. 1582/2024.
- Almennir greiðendur 37.794 kr.
- Aldraðir, öryrkjar og börn 25.198 kr.
Athugið þó að sjúklingur greiðir fyrir aðgerðir miðað við stöðu sína hjá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) og er þetta hámarkið. - Afrit af sjúkraskrárgögnum kostar frá 25.000 kr. Innifalið er prentun, yfirferð læknis og úrvinnsla heilbrigðisgagnafræðings.
- Vinsamlegast athugið að gjald er tekið fyrir tíma sem er ekki afbókaður með fyrirvara. Afbóka þarf fyrir kl. 15:00 daginn áður.
Athygli er vakin á því að greiða þarf allan kostnað áður en farið er inn í aðgerð.
Við bendum einnig á að hægt er að greiða gegnum Pei (https://pei.is/) og Netgíró (https://netgiro.is/)
Gjaldskrá fyrir hryggjaraðgerðir
- Hryggjaraðgerð – einföld: 1.150.000 kr.
(Smásjáraðgerð á einu liðbili öðrum megin frá. Vegna
brjóskloss, hryggþröngar eða taugarótarklemmu).
- Hryggjaraðgerð – stærri: 1.550.000 kr.
(Smásjáraðgerð á tveimur liðbilum öðrum megin frá ,
aðgerð á einu liðbili báðum megin frá eða heildarbrottnám
á liðbogaþynnu).
Viðtal og skoðun, ásamt ítarlegu mati er með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga.
Gjaldskrá fyrir liðskiptaaðgerðir
- Liðskiptaaðgerð á mjöðm, án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga – 1.500.000 kr.
- Liðskiptaaðgerð á hné, án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga – 1.500.000 kr.
Aðgerðir sem eru ekki með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga þarf að greiða fyrirfram með millifærslu með a.m.k. viku fyrirvara.
Reikningsupplýsingar: 0101-26-000008, kt. 590897-2649