Ný upplýsingasíða um fremri krossbandaaðgerðir
Ný og ítarleg upplýsingasíða um fremri krossbandaaðgerðir er nú komin í loftið á vef Læknastöðvarinnar Orkuhúsinu.
Á síðunni má finna á einum stað upplýsingar um allt ferlið – undirbúning fyrir aðgerð, aðgerðardaginn sjálfan, fyrstu dagana og vikurnar eftir aðgerð og endurhæfingu. Þar er einnig fjallað um ýmis praktísk atriði sem gott er að hafa í huga fyrir og eftir aðgerð.
Markmiðið með síðunni er að auðvelda þeim sem eru á leið í krossbandaaðgerð að undirbúa sig vel og hafa greiðan aðgang að skýrum og ítarlegum upplýsingum um ferlið.
Læknastöðin Orkuhúsinu framkvæmdi um 270 aðgerðir á fremra krossbandi árið 2025, eða um 90% allra krossbandaaðgerða á Íslandi. Átta sérhæfðir bæklunarskurðlæknar framkvæma aðgerðirnar á Læknastöðinni.
Skoðaðu nýju upplýsingasíðuna um fremri krossbandaaðgerðir hér.
Recent Posts







