300. bakaðgerðin framkvæmd í Orkuhúsinu
13. mars 2026
Í dag var framkvæmd 300. aðgerðin á hrygg í Orkuhúsinu. Um er að ræða aðgerðir vegna brjóskloss eða þrenginga í mænugöngum í mjóbaki.
Læknastöðin Orkuhúsið hefur gert samning við Sjúkratryggingar Íslands um þessar aðgerðir. Það þýðir að sjúklingar greiða einungis samkvæmt stöðu sinni hjá Sjúkratryggingum Íslands, líkt og fyrir aðrar aðgerðir og viðtöl hjá sérgreinalæknum.
Þessi áfangi markar mikilvægt skref í þróun þjónustunnar og undirstrikar þá sérfræðiþekkingu sem byggst hefur upp í Orkuhúsinu á sviði bakaðgerða.
Recent Posts

6. október 2026
Sigurveig Pétursdóttir, sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum með sérhæfingu í bæklunarlækningum barna, kemur til starfa á Læknastöðinni í október. Sigurveig hefur áratuga reynslu af bæklunarskurðlækningum og hefur starfað sem sérfræðingur á bæklunarskurðdeild Landspítala frá árinu 2002. Áður starfaði hún á bæklunarskurðdeild Akademiska sjukhuset í Uppsölum í Svíþjóð, meðal annars á barnabæklunardeild sjúkrahússins. Sigurveig lauk sérfræðinámi í bæklunarskurðlækningum í Svíþjóð og fékk sænskt sérfræðileyfi árið 1991 og íslenskt sérfræðileyfi árið 1992. Koma Sigurveigar er mikilvæg viðbót við starfsemi Læknastöðvarinnar og styrkir sérstaklega þjónustu við börn og ungmenni sem þurfa á mati og meðferð vegna bæklunarvandamála að halda. Nú þegar er hægt að senda tilvísanir til Sigurveigar á Læknastöðina.

18. september 2026
Ný og ítarleg upplýsingasíða um fremri krossbandaaðgerðir er nú komin í loftið á vef Læknastöðvarinnar Orkuhúsinu. Á síðunni má finna á einum stað upplýsingar um allt ferlið – undirbúning fyrir aðgerð, aðgerðardaginn sjálfan, fyrstu dagana og vikurnar eftir aðgerð og endurhæfingu. Þar er einnig fjallað um ýmis praktísk atriði sem gott er að hafa í huga fyrir og eftir aðgerð. Markmiðið með síðunni er að auðvelda þeim sem eru á leið í krossbandaaðgerð að undirbúa sig vel og hafa greiðan aðgang að skýrum og ítarlegum upplýsingum um ferlið. Læknastöðin Orkuhúsinu framkvæmdi um 270 aðgerðir á fremra krossbandi árið 2025, eða um 90% allra krossbandaaðgerða á Íslandi. Átta sérhæfðir bæklunarskurðlæknar framkvæma aðgerðirnar á Læknastöðinni. Skoðaðu nýju upplýsingasíðuna um fremri krossbandaaðgerðir hér.

6. mars 2026
Í Orkuhúsinu eru framkvæmdar aðgerðir vegna brjóskloss og mænugangaþrengsla í mjóbaki þegar önnur meðferð hefur ekki borið árangur. Í aðgerðunum er notuð smásjá sem gerir skurðlæknum kleift að vinna með meiri nákvæmni og minni inngrip í heilbrigðan vef. Þetta getur dregið úr blæðingum, bólgum og verkjum eftir aðgerð og minnkað líkur á fylgikvillum. Í myndbandinu hér fyrir neðan er farið yfir hvernig slíkar aðgerðir fara fram og við hverju sjúklingar geta búist í ferlinu.

23. september 2025
Læknastöðin Orkuhúsinu, sem er sjálfstætt starfandi heilbrigðisfyrirtæki, tekur þátt í úttekt á stafrænum sjúkraskrárkerfum og notkun þeirra, ásamt þremur ríkisstofnunum. Við teljum mikilvægt að taka þátt í öllum verkefnum með ríkinu sem geta stuðlað að bættri heilbrigðisþjónustu og bættri reynslu sjúklinga. Markmið þessarar úttektar er að niðurstaðan veiti góða mynd af því hvar við stöndum í stafrænni umbreytingu og hvað þarf að gera til að bæta notkun og samvirkni kerfanna þvert á þjónustuveitendur. Þetta á að stuðla að betri upplifun sjúklinga og tryggja að þeir fái heildstæðari yfirsýn yfir sína heilbrigðisþjónustu. Frétt heilbrigðisráðuneytisins til frekari upplýsinga: Stjórnarráðið | Mikilvægt skref í stafrænni þróun á landsvísu.





