Saga Læknastöðvarinnar
Læknastöðin í Orkuhúsinu er rekin af Stoðkerfi ehf. Félagið var stofnað í ágústmánuði 1997 af þremur bæklunarskurðlæknum og einum svæfingalækni. Ástæðan var sú að svokallaðar dagaðgerðir bæklunarskurðlækna komust illa að á sjúkrahúsum höfuðborgarsvæðisins og langir biðlistar höfðu myndast. Þótt engir samningar væru til við Tryggingastofnun Ríkisins, réðust stofnendur félagsins í endurbætur á læknastöð sem þeir höfðu keypt að Álftamýri 5. Samningar við TR tókust þó fljótt og full starfsemi félagsins hófst árið 1998.
Í upphafi starfrækti Stoðkerfi ehf. aðeins nokkrar læknastofur og eina til tvær skurðstofur. Starfseminni jókst þó fljótt ásmegin og læknum fjölgaði. Félagið keypti allt húsnæði að Álftamýri 3-5 árið 1999, og tók undir starfsemina. Þá voru hluthafarnir orðnir tíu talsins. Læknastöðin fékk fleiri til samstarfs við sig; Íslenska myndgreiningu, sem sá um myndgreiningaþjónustu; Sjúkraþjálfun Íslands og síðan innanlandsdeild Össurar hf. Árið 2000 var því komin full starfsemi í húsnæðið í Álftamýri og fleiri öflugir læknar komnir til starfa. Auk hefðbundinna bæklunarskurðaðgerða var tekin upp svokölluð sérhæfð verkjameðferð. Eftirspurn eftir henni varð þegar umtalsverð. Starfsemi fyrirtækjanna allra var rekin í um 1700 fermetra húsnæði og var hver einasti fermetri fullnýttur. Því varð fljótt ljóst að vöxtur starfseminnar var meiri en húsnæðið leyfði.
Árið 2003 fluttist starfsemin að Suðurlandsbraut 34, þar sem Orkuveitan hafði áður verið til húsa. 4000 fermetra húsnæði var þá tekið undir alla starfsemi fyrirtækjanna og gefið nafnið Orkuhúsið. Læknastöðin rekur rúm 40% af þessu húsnæði, tvær móttökuhæðir auk skurðstofugangs þar sem þrjár skurðstofur eru í fullum rekstri. Kennslu- og fundaaðstaða er síðan í sameign. Skurðstofurnar eru reknar samkvæmt bestu gæðastöðlum landsins. Sjúkraskrárkerfi læknastöðvarinnar er eins og best þykir, öll gagnasöfnun er í öruggum höndum viðurkenndra aðila og starfsemin hefur verið tekin út af Persónuvernd.
Á skurðstofum félagsins eru gerðar um 3500 aðgerðir á ári. Þetta voru einkum ýmsar liðspeglunaraðgerðir, krossbandsaðgerðir, handa- og fótaaðgerðir, ásamt sérhæfðri verkjameðferð. Allt eru þetta dagaðgerðir þar sem sjúklingar fara fljótlega heim að lokinni aðgerð.
Móttökustarfsemi læknastöðvarinnar er umfangsmikil og á læknastöðinni starfa nú 16 bæklunarskurðlæknar. Hvergi á landinu vinna fleiri bæklunarskurðlæknar á einum stað, að sjúkrahúsunum meðtöldum. Auk bæklunarskurðlækna starfa á stöðinni svæfingalæknar og verkjasérfræðingar og enn fremur heila- og taugaskurðlæknir og lýtalæknir. Læknar eru því 23 og hluthafar félagsins 17 talsins. Starfsmenn aðrir en læknar félagsins eru 17. Læknastöðin sinnir stórum hluta sjúklinga með stoðkerfisvandamál á höfuðborgarsvæðinu en einnig af landinu öllu. Stefnt er að frekari starfsemi, bæði frumþjónustu og stærri aðgerðum þar sem m.a. kæmi til innlagnar.
